Sunday, July 29, 2007

Eftir 22 ár og 2 mánuði, þá er stundin loksins runnin upp, stund sem margir hafa beðið eftir í slíku ofvæni að eitthvað hlaut undan að láta. Ég, Björgvin, er að blogga í fyrsta skipti á minni löngu ævi. Bjarki vill reyndar meina að ég er kornungur, allavega miðað við hvernig augum hann lítur á stelpur...ef þær eru ekki löngu orðnar 28 ára þá lítur hann ekki við þeim og vill ekkert með þær hafa.

En svo ég komi mér að efninu þá er ástæða þess að ég er að blogga sú að ég og Bjarki Már Elíasson erum að fara á flakk um Evrópu næsta mánuðinn eða svo. Á þessa síðu munum við skrifa hvað á daga okkar hefur drifið, hvar við erum staddir, og hvert við munum halda. Aðaltilgangurinn með síðunni er síðan að sjálfsögðu sá að skrifa sem mest inn á síðuna á kvöldin svo við getum rifjað upp gærkvöldið þegar við vöknum daginn eftir.

Í gær settumst við drengir niður og settum saman smá ferðaplan, og er planið þannig að næsta föstudag, 3. ágúst er flogið til Köben, þaðan er farið gegnum austur Þýskaland með viðkomu í Berlín, skellum okkur til Austurríkis og jafnvel Slóveníu og Króatíu áður en við höldum til Ítalíu að hitta Bjarna. Eftir Ítalíu verður haldið upp eftir til Swiss, gegnum vestur Þýskaland, Belgíu og til Hollands þar sem við munum fara á tónlistarhátíðina Lowlands Festival, þar sem m.a. Interpol, Arcade Fire, Damien Rice, Killers og CSS munu spila. Eftir það verður ferðinni heitið til Danna bróður, Þóru og fjölskyldu í Horsens, Danmörku, þar sem ég mun í fyrsta skipti sjá nýfædda frænku mína.

En þangað til næst, bless bless

Björgvin Sigmundsson

3 comments:

Anonymous said...

Hæhæ:D Góða ferð strákar og gangi ykkur vel á öllu þessu flakki ykkar:D Þið kastið kveðju á Bjarna frá mér:) Við sjáumst svo klárlega í Garðabæjarpartýi í haust!;)

Anonymous said...

Sælir, skemmtið ykkur vel!!, váá hvað ég öfunda ykkur, ferð sem verður reynslu lífsins gæfari, en kyssið Bjarna frá mér og njótið ferðalagsins:)

Anonymous said...

Takk fyrir, og já við ætlum að kasta kveðju og kyssa Bjarna fyrir ykkur, hann á það skilið strákurinn.

Hafið það sem allra best um verslunarmannahelgina...sjáumst í september!!